Færsluflokkur: Bloggar

Aumingjar

Hversu miklir aumingjar geta menn verið?

Að þurfa að fara þrír saman til að gera upp eitthvað vesen við eina stúlkukind, en finna hana ekki, og slasa þá nírætt kerlingargrey í staðinn!

Ætli þeir séu ekki svakalega stoltir af sér núna? Að ekki sé talað um foreldra þeirra! 


mbl.is Þrír piltar ruddust inn í íbúð konu á níræðisaldri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hmmmmm...

Eins og venjulega þegar sagt er frá svona myndskeiðum á mbl.is , þá er búið að fjarlægja það af netinu :/

Hins vegar gaman að sjá þarna, á síðu dansks dagblaðs, auglýstar myndirnar Börn og Foreldrar :)

Áfram Vesturport!


mbl.is Setti myndskeið af ráni á netið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...og enginn segir neitt!

Fréttin ætti í raun að snúast um hversu auðvelt er að hækka verð á öllum fjandanum á Íslandi, því hér mótmælir aldrei neinn svona hækkunum.

Það er víst þannig í viðskiptaheiminum að seljandi setur upp verð og ef kaupandi mótmælir því ekki, þá er hann í rauninni að segja að hann sé bara sáttur við að inna af hendi þá upphæð.

 Af hverju hækka þeir ekki lítraverðið bara upp í þúsundkall?

Ég efast um að nokkur myndi segja orð við því.

...gadddemit.


mbl.is Eldsneyti hækkar mikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Akkuru er World Wrestling Federation að tjá sig um þorsk?

nei, bara svona........
mbl.is Ber til baka ummæli WWF um þorskinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvur andskotinn!!!

Sem ríkisborgari lýðveldisins Íslands blöskrar mér þetta, og sem faðir lítillar stúlku ber mér að sjá til þess að svona hlutir komi aldrei fyrir hana.

Miðað við hversu mörg við erum í sömu stöðu, finnst mér fáránlegt að við skulum ekki hafa stofnað "óeiginleg samtök", til að koma í veg fyrir að menn sem hafa verið dæmdir fyrir að níðast á börnunum okkar,hafi möguleika á að gera það aftur, og hvað þá eftir þetta stuttan tíma.

4 ár þýðir að hann sé kominn út eftir kannski svona 2. 

Að hugsa sér að maður, sem fremur slíkan viðbjóðs verknað, skuli vegna "góðrar hegðunar" eftir 2 ár í góðu yfirlæti, innan fangelsisveggja á uppihaldi sem skattarnir okkar borga, vera talinn hafa greitt skuld sína við fórnarlömbin og þjóðfélagið.

Það er viðbjóður.

Það hlýtur að vera hægt að standa saman og "hjálpa" þessum mönnum að gera þetta ekki aftur. 


mbl.is Fjögurra ára fangelsi fyrir nauðganir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver segir svo að prófessorar séu óspennandi?

Þessi kall er bara með pípandi rokkstjörnugen!
mbl.is Hækkaði einkunnir gegn greiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Zhongsheng Hongling frá Guangdong

Zhongsheng Hongling, ....það er fallegt nafn ...:)

 


mbl.is Fæddur í mannþröng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reykingabannsbúnaður

Ég var að vesenast í Danaveldi um daginn.

Þar er á allnokkrum vinnustöðum (þ.á.m. veitingastöðum) búnaður frá þessu fyrirtæki: www.smokefreesystems.com , og öðrum sambærilegum fyrirtækjum.

Þetta er búnaður sem alveg svínvirkar, og ég skil ekki af hverju enginn fær að nýta þetta hér á landi og þar með milda aðeins kjaftshöggið fyrir þá sem ennþá reykja.

Mér finnst rosalega leiðinlega komið fram við reykingafólk, þetta er orðið svolítið nornaveiðalegt.  Tilgangurinn með reykingabanninu var upphaflega sá að koma í veg fyrir að starfsfólk sem kærði sig ekki um slíkt, yrði þvingað til að vinna í reykmettuðu og heilsuspillandi umhverfi. Það er að sjálfsögðu göfugur tilgangur og ekkert minna en eðlilegt.

En, 

mér, og mörgum öðrum, finnst gott að reykja.

Ég veit að það er ekki hollt fyrir mig.

Mér, og mörgum öðrum, finnst líka gott að fá mér bjór.

Svo finnst mér, og mörgum öðrum, alveg hrikalega gott að gera bæði í einu, EN ÞAÐ ER ALVEG SVAKALEGA BANNAÐ!!! 

Af hverju mega staðir eins og Hressó og fleiri, sem eru með afgirta utanhúss reykingaaðstöðu, ekki leyfa mér að njóta bjórs og reyks saman þegar fer að kvölda, en leyfa mér það á daginn?

Er hollara að gera þetta saman á daginn? 

Nei, það er bara vegna þess að það gæti verið meira gaman fyrir fólk að gera svona á kvöldin.

Gaman er bannað. Alveg eins og gott er bannað.

Reglusmíðarar Íslands eru stundum á því að þeir þurfi bara að smíða nógu assgoti leiðinlegt.

Allt sem heitir málamiðlun í svona málum er bannað, hér skal bara vera leiðinlegt, hér finnum við ekki leiðir sem mögulega þjóna sama upphaflega tilganginum, bara á ofurlítið mannúðlegri hátt. Nei, hér má bara vera leiðinlegt.

Glatað. 


mbl.is Borgin ráðalaus vegna reykklefa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á Íslandi gleymist hins vegar að menn séu bófar...

...þeim er meira að segja hleypt á Alþingi og allan fjandann!!!
mbl.is Gleymdist í fangelsi í 50 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...skrítiiiiiiið...

Hversu marga langar að snerta dauðan fót?

Hvað þá þegar hann er búinn að vera rotnandi í kannski svona tíu ár ofan í kjallara hjá einhverjum indverja sem sagaði hann af grey kallinum sem átti hann.

Það má vera assgoti mikil blessun sem maður hlýtur fyrir slíkt!

Indverjar eru stundum svolítið öðruvísi þenkjandi en við klakabúarnir. 

...skrítiiiiiiið.... 


mbl.is Stálu fæti af helgum manni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband