Mikilmennskubrjálæðingur!!!

Með þessu er hann einfaldlega að segja að sér sé nákvæmlega sama hvað fólkinu í landinu finnist um hann, að hann eigi bara þetta land og að enginn geti snert hann.

Djöfuls endemis mikilmennskubrjálæðingur er þetta!

 Skammastín Davíð, og hlustaðu á þjóðina!


mbl.is Davíð: „Þá mun ég snúa aftur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Húnbogi Valsson

Bullarinn Davíð: "Gagnrýninn í garð nýju auðmannanna" Voru húrrahrópin hans þá bara gagnrýni? "Talað fyrir daufum eyrum" Eru hinir háværu aðdáendur hans með dauf eyru? Ég veit að þeir eru með daufa veruleikatengingu.

Húnbogi Valsson, 7.12.2008 kl. 11:17

2 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Húrrahrópin voru nú ekki oft - bara sýnd í sjónvarpinu aftur og aftur. Og hann var ákaflega gagnrýninn í garð auðmannanna, til dæmis reyndi hann að takmarka með lögum eignaraðild sumra þeirra að fjölmiðlum. Svolítið sem sést ákaflega vel þessa dagana að var kórrétt. Verst að forsetinn, persónulegur vinur sumra auðmannanna (dóttir hans var líka í vinnu hjá þeim) neitaði að skrifa undir, þrátt fyrir að vera augljóslega óhæfur til að taka afstöðu í málinu vegna tengsla, bæði persónulegra og viðskiptalegra.

Úr dönsku fréttinni:

"- Jeg er kun 6o år og atter helt rask, så jeg har tænkt mig at sidde endnu nogle år og derefter træde tillbage lige så frivilligt, som jeg gjorde som statsminister. Hvis jeg tvinges væk, stiller sagen sig anderledes. Så vil jeg vende tilbage til politik, lyder det med et hvast blik i øjnene."

Hann hefur áður sagt, meira í gríni en alvöru, að hann neyðist til að fara aftur í pólítík ef hann þurfi að hætta. Hvað á hann að gera annað, selja ís? Reyndar held ég að sumir ráðherrar mættu taka hann sér til fyrirmyndar, hann þvingaði t.d. Árna Johnsen til að segja af sér eftir að hann gerði mistökin frægu. Ætli hann væri ekki búinn að láta einhverja fara ef hann færi með formennsku í dag?

Ingvar Valgeirsson, 17.12.2008 kl. 19:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband